Komið þið sælir krakkar mínir og gleðilegt sumar. Nú fer senn að
líða að fermingarmótinu og því við hæfi að koma með dagskrá og
umþabil verð á þessari pakka ferð til Hafnar.
Föstudaguinn 02.j úní
Opið kvöld á Víkinni. Engin sérstök dagskrá, gott fyrir þá
krakka sem verða komnir að brjóta ísinn.
Laugardagurinn 03. júní
Mæting á Kaffihornið í hádeginu, hægt verður að fá sér súpu og
brauð.
Yfir daginn verður svo farið í þrjár skoðunarferðir. Byrjum að
sjálfsögðu í Hafnarskóla þar sem vonandi einhver gamall góður
kennari tekur okkur í smá tour um skólann og höldum svo yfir í
Heppuskóla þar sem Guðmundur Ingi ætlar að rifja upp gamla tíma
fyrir okkur, svo að lokum förum við yfir í Nýheima og skoðum nýja
Framhaldskóla Austur-Skaftafellsýslu þar sem ég undiritaður var
einn af fyrstu til að útskrifast ásamt honum Jónasi.
Þá er best að vinda sér úr þungaloftinu úr skólunum og skella
sér í siglingu með Lóðsinum. Það þekkja allir strand túrin með
honum og ef til vill munum við fara í land einhverstaðar og einhver
mun kannski halda væmna ræðu aldrei að vita..
Svo munum við fara i einhverskonar leiki til að eyða seinustu
orkunni yfir daginn og gera gott pláss fyrir matinn.
Kvölmaturinn verður á kvöldmálstíma og verður hann á hótelinu
sem kennt er við Höfn eða Hótel Höfn. Þá eru makar velkomnir að
sameinast hópnum og njóta kveldsins með okkur. Á meðan við snæðum á
matnum munu gamlar myndir af okkur hylja vegg hótelsins og getur þá
fólk hlegið og dansað yfir þeim á milli þess að troða í sig matnum.
Eftir matinn fáum við okkur kaffisopa og róum okkur aðeins niður
fyrir sjálfa singstar keppnina sem Jónas singmaster mun leiða
áfram. Það verður því borðað, drukkið,dansað og sungið á hótelinu
fram að nóttu. Þetta verður einkasamkvæmi og því óheimilt að bjóða
vinum nema þeir séu jafn gamlir og þú og voru með þér í bekk.
Svona lítur matseðill út og verðið á honum.
Aðalréttur: Lamb "dijon" með gratin kartöflum,grænertu mouse og
fersku
vorsalati
Eftirréttur
assionfruit mousse ala Hótel Höfn
Verð kr 3900.
Bartilboð
tór bjór og snafs kr 600
Lóðsferðinn mun eflaust kosta smá skilding.
Ekki frekari kostnaður ætti að vera að svo stöddu.
Hann kveður að sinni Gunni Au